Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Bangkok

tvliklikur fjoldu folks og hiti, raki og havadi...dasamlegt! i alvoru her eru allir svo vinarlegir og brosandi ad tad vegur algerlega upp a moti ollu hinu! vid gistum her a tviliku hollywood hoteli med sundlaugagardi a 5 had. vid erum ad fara nuna til mai hon son og eg er ad falla a tima. tid heyrid fra mer seinna en nu erum vid af fara m flugi til chiang mai og svo til mai hon son heyrumst!


hressandi bið á flugvelli

Er eitthvað skemmtilegra en að bíða á flugvelli? Fátt veit ég en núna er partýið fyrst orðið áhugavert. Thai air er algerlega að bregðast vonum okkar og hætti bara við að ná í okkur hingað til kastrup. nú er verið að troða okkur í sas flug í kvöld kl 22:45 að dönskum tíma! Þannig að hér liggja hjúkrunarfræðingar eins og hráviði í biðsalnum með misgáfulega svefnsvipi og bíða eftir að hinn norræni flugrisi SAS bjargi málunum!

Kveðja frá transfer sal CPH!Wink


Vá búin!

Jæja ég skilaði barninu mínu í þríriti til leiðbeinanda áðan. BS ritgerðin lítur svona líka ljómandi vel út (hverjum þykir sinn fugl fagur). Ég verð að segja að ég hef eiginlega alveg haft nóg að gera að undanförnu. Stöku sinnum á maður alveg skilið smá klapp á bakið og ég klappaði mér á bakið áðan. Á undanförnum mánuði hef ég tekið mín síðustu próf í grunnnámi háskólans, ráðið mig í vinnu sem ég er mjög ánægð með, keypt mér ferð til Tælands hvorki meira né minna, skilað lokaritgerðinni og keypt mína fyrstu íbúð! Mér finnst ég alveg mega klappa mér pínu á bakið.

Já, ég er sem sagt orðin íbúðareigandi af dásamlegri risíbúð í miðbænum. Með arni í stofunni sem er samtengd eldhúsinu. Gluggar á alla kanta, sérinngangur og upptekið loft og þvottavélin inni á baðinu! Húsið er yndislega fallegt og vel farið. Ég er sem sagt alveg í skýjunum með þessa litlu en notalegu íbúð.

Nú er næsta mál á dagskrá að kynna barnið (ritgerðina) fyrir áhugasömum. Pakka niður í tösku því nú er ég á leið til Tælands í útskriftarferð! Þannig að líklega verður næsta færsla þaðan. Kemur allt í ljós.

 


ég er nú aðallega á nálum!

Er á nálum yfir lokaritgerðarskilum, kosningum, listahátíð, evróvísunni og landsbankadeildinni (nei ekki deildinni mér er alveg saman um hana)... hefði átt að vera enn á nöglum, ekkert grip í þessum nálum!


mbl.is Sumir eru enn á nöglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir í rokinu

Þessi auglýsing frá sjálfstæðisflokknum á ,,haus" mbl.is er alveg brjálæðislega hlægileg! Ég skellti uppúr þegar Geir og (Grani) Þorgerður Katrín skutust uppá blána bakgrunninn eins og eldflaugar. Svo hló ég enn meira þegar myndin af honum Geir birtist frá vinstri (hummm?) inn á þennan sama bláa bakgrunn. Geiri er svo brosandi að ég hef bara ekki séð annað eins frá því að myndbandið með sænska krúttinu sem hló svo innilega tröllreið öllum netpósthólfum. Brosið slær út Halldór Ás stuðbolta með meiru og geri/geiri aðrir betur. Mér finnst nú eins og Geir hljóti að vera staddur upp á Öxnadalsheiði í að minnsta kosti 40 metrum á sekúndu og munnvikin hreinlega blakta í gleðivímunni sem því fylgir.

Mér finnast kosningaauglýsingar almennt skemmtilegar! Mér finnst líka auglýsing Samfylkingarinnar með öllu fólkinu að reyna að útskýra stimpilgjöld fyrir útlendingnum....Já hvernig í ósköpunum útskýrir maður þann fjanda. Plís takið þessa hefð (icelandic tradition) út af borðinu og það strax.

Annars verð ég að segja að mér finnst baráttan fremur bragðdauf eins og ég bjóst innilega við rosa stemmningu og baráttu í öllum hornum. Jæja vika í þetta ekki öll nótt úti enn.


Einn af þessum leiðinda dögum

Hvers á maður að gjalda. Ég hóf daginn á að stara á tölvuskjáinn í von um að það eitt og sér bætti stöðuna á lokaritgerðinni minni. Það bar ekki tilætlaðan árangur. Síðan fór ég í bankann (eins og það er nú alltaf skemmtilegt). Eftir það í Bónus (það toppar fátt bnusann) og svo í skoðun með bílinn og hún gekk svo ljómandi vel að maðurinn gaf mér fínann grænan límmiða á litlu rauðu bjölluna mína. Límmiðinn er svo fínn að hann sést langar leiðir og gefur mér leyfi til að koma aftur í heimsókn til hans og bíða í einn og hálfann tíma (eins og ég fékk að gera í dag) til að láta líta á litla rauð aftur. Svona dagar eru æði!....svo er rigning í þokkabót. Ég sver ef ég verð látin skokka úti í Boot camp á eftir þá flippa ég.

Höfundur

Elín Birna Skarphéðinsdóttir og Pálmi Viðar Snorrason
Elín Birna Skarphéðinsdóttir og Pálmi Viðar Snorrason
Krían og Krabbinn!

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...08-dsc_0094
  • ...08-dsc_0075
  • ...08-dsc_0058
  • ...08-dsc_0057
  • ...08-dsc_0050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband